Þemu

Þemu

Fyrir hvert grænfánatímabil velja skólar sér eitt eða fleiri þemu til að vinna að. Öll þemu byggjast á menntun til sjálfbærni og eru tengd grunnþáttum menntunar.

Þemu Skóla á grænni grein taka á mörgum hliðum menntunar til sjálfbærni og tengjast grunnþáttum menntunar og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.                                    Þemun tengjast öll innbyrðis og er oft viðeigandi að vinna með fleiri en eitt þema.

Skrefin sjö eru vinnuferlið, en þemun eru efnistökin.

Skólinn (umhverfisnefndin) velur 1-2 þemu

Skólinn (umhverfisnefndin) metur stöðu umhverfismála út frá þemanu sem er valið og setur sér markmið sem tengjast þemanu með einhverjum hætti. Mikilvægt er að allir í skólanum séu meðvitaðir um hvaða þema sé unnið að og að allir fái tækifæri til þess að vinna verkefni í tengslum við þemað.

Þemun sem í boði eru:

Neysla og hringrásarhagkerfið

Hverjar eru raunverulegar þarfir okkar? Þurfum við allan þennan mat, föt, hluti? Hvaðan kemur þetta allt? Er þetta framleitt á Íslandi eða annars staðar? Hvað verður um það sem við erum hætt að nota? Getum við minnkað neyslu okkar? Við þurfum að endurhugsa framtíðina. Úrgangur og neysla er eitt af þemum Skóla á grænni grein.

Orka

Hvaðan kemur orkan? Hvernig orku notum við á Íslandi? Hver eru umhverfisáhrif mismunandi orkugjafa? Hver eru umhverfisáhrif þeirra orkugjafa sem við notum hér á landi? Eigum við nóg af orku í heiminum? En á Íslandi? Hvernig er orkan nýtt? Hvernig getum við sparað orku?

Átthagar og landslag

Hvað er að finna í nærumhverfi skólans? Hvaða stofnanir og fyrirtæki er að finna í nágrenninu? Hvar búum við og hvernig komumst við í skólann? Getum við haft samband við fólkið í sem býr og starfar í kringum skólann? Getum við kennt þeim eitthvað eða lært eitthvað af þeim? Getum við haft áhrif á nærumhverfi okkar með einhverjum hætti, t.d. sett okkur í samband við sveitarstjórn ef það er eitthvað sem við viljum koma á framfæri? Hvernig lítur nærumhverfi skólans út? Eru hólar eða hæðir? Fjöll og dalir? Getið þið farið í ferð út fyrir skólann þar sem þið upplifið breytt landslag? Hvernig hefur landslagið myndast? Hvernig tengist landslagið sögunni? Hvaða örnefni í nærumhverfinu?

Lýðheilsa

Hvernig er heilsa okkar í skólanum? Hreyfum við okkur nóg? Hvað getum við gert til að hreyfa okkur meira í daglegu lífi? Borðum við hollan mat? Líður okkur vel í skólanum og daglega lífinu? Erum við góð hvert við annað? Erum við dugleg að vera úti í náttúrunni? Hvaða áhrif hefur lífstíll okkar á umhverfið?

Loftslagsbreytingar og samgöngur

Hvað eru loftslagsbreytingar? Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar? Af hverju stafa þær? Hvað getum við gert til að sporna við þeim? Hvernig komum við í skólann? Komum við gangandi, hjólandi, á bíl eða með strætó? Hvaða áhrif hafa mismunandi samgöngutæki á umhverfið? En heilsuna?

Hnattrænt réttlæti

Hvernig tengjumst við öðrum heimshlutum? Hvernig hafa nemendur það annars staðar? Búa allir við í heiminum við félagslegt réttlæti? Hefur lífstíll okkar einhver áhrif á líf fólks annars staðar í heiminum? Getum við sett okkur í samband við nemendur annars staðar í heiminum?

Náttúruvernd

Náttúruvernd snýst um verndun lífbreytileika, jarðfræðilegra minja, landslags, víðerna og náttúruminja fyrir umsvifum manna. Náttúruvernd hefur það að markmiði að draga úr hættu á að líf, land, haf, vatn og loft mengist eða spillist með einum eða öðrum hætti. Náttúruvernd miðar einnig að því að auðvelda umgengni og kynni fólks af náttúrunni án þess að henni sé raskað.

Vistheimt

Getum við gert eitthvað til að endurheimta það vistkerfi sem áður var á landssvæði sem hefur raskast? Getum við endurheimt vistkerfi á svæðum þar sem nú er auðn? Landvernd stendur fyrir verkefni sem snýr að því að aðstoða nemendur við visheimt á örfoka landi í grennd við skólann. Áhugasamir skólar leiti til Landverndar.

Lífbreytileiki

Þróun lífs á jörðinni hefur tekið milljónir ára. Á þessum tíma hafa orðið til ótal tegundir lífvera sem eru hver annarri háðar um næringu, búsvæði og fleira. Með því að gæta að lífbreytileika jarðar, styðjum við vistkerfi og hringrásir jarðarinnar sem veita okkur loft, vatn, fæðu og fleira. Lífbreytileiki er eitt af þemum Skóla á grænni grein.

Vatn

Hvaðan kemur vatnið? Eigum við nóg af vatni í heiminum? En á Íslandi? Hvernig nýtum við vatnið? Hvernig spörum við vatnið? Þurfum við að spara vatnið á Íslandi?