Skip to main content

Markmið:

  • Að nemendur geri sér grein fyrir því sem hefur verið gert í umhverfismálum í skólanum.
  • Að vekja áhuga nemenda á umhverfismálum.
  • Að nemendur geri verkefni sín sýnileg og aðgengileg öðrum.

Efni og áhöld:

KortktaflaEndurnýtanlegur pappír og efniviður sem hægt er að nota til að skrá upplýsingar á töfluna.

Skæri, lím, litir og annað efni eftir þörfum.

Framkvæmd:

Valinn er staður fyrir töfluna og nemendur fara í hugmyndavinnu um útlit hennar.

Nemendur þurfa einnig að velta fyrir sér hvað skal setja á töfluna og vinna sameiginlega úr þeim niðurstöðum.

Búa töfluna til og raða upplýsingum inn á hana. Upplýsingarnar geta verið yfirlit yfir grænfánavinnuna í skólanum, myndir sem sýna vinnunna, áhugaverðar greinar eða myndir sem tengjast umhverfismálum og hugmyndir um hvað hægt er að gera til að bæta umhverfismál í skólanum enn frekar.

Undirbúningur kennara

Vera búin að taka saman yfirlit yfir það sem gert hefur verið í tengslum við Grænfánaverkefnið í skólanum.

Taka til efni og áhöld.

Undirbúningur nemanda

Hafa tekið þátt í Grænfánavinnu í skólanum svo þeir séu meðvitaðir um þau verkefni sem hægt væri að sýna á töflunni.

Vefsíður sem hægt er að nota:

Heimasíða skólans (ef verkefni tengd Grænfánavinnunni hafa verið sett þar inn)

https://landvernd.is/graenfaninn

http://www.sorpa.is/

http://www.visindavefur.is/

http://www.nams.is/krakkasidur/