Hér má finna svör við öllum helstu spurningum sem okkur berast um verkefnið Umhverfisfréttafólk. Það er auðvelt að taka þátt!

Hvernig tek ég þátt?

Skólinn þinn þarf að vera skráður í verkefnið til þess að nemendur geti tekið þátt. Ef þú ert nemandi getur þú hvatt kennara eða stjórnendur í skólanum þínum til þess að hefja þátttöku í verkefninu.

Er einfalt að taka þátt?

Já. Það er mjög einfalt og verkefnið er þess eðlis að auðvelt er að sníða það að þörfum hvers og eins skóla. Kennarar ráða því til dæmis hvað verkefnið er stór hluti af hverjum áfanga.

Hvernig verkefnum er hægt að skila inn í keppnina?

Hvernig vinnur verkefnið á loftslagskvíða nemenda?

Verkefnið gefur nemendum tækifæri til að hafa áhrif á umhverfismálin. Nemendur styðjast við áreiðanlegar upplýsingar í fréttamiðlun sinni og öðlast grunnþekkingu í upplýsingamiðlun sem nýtist þeim til framtíðar. Skólar í verkefninu geta fengið aðgang að námsefni um bjargráð við loftslagskvíða.

Eru tengsl milli verkefnisins og Heimsmarkmiðanna?

Já. Tengslin og samhljómurinn þar á milli eru mjög mikil. Að auki eru nemendur beðnir um að tilgreina hvernig verkefnið þeirra tengist Heimsmarkmiðunum þegar þeim er skilað í keppnina.

Hvernig virkar árlega keppnin?

Nemendur skila inn verkefnum sínum að vori fyrir ákveðna tímasetningu sem er breytileg á ári hverju. Sérfræðingar innan Landverndar fara yfir öll verkefni sem berast og fara 10 – 15 stigahæstu verkefnin í undanúrslit.
Dómnefnd skipuð af reyndu fjölmiðlafólki velur síðan fyrsta, annað og þriðja sæti. Auk þess veita Ungir umhverfissinnarSamband íslenskra framhaldsskólanema og Landssamtök íslenskra stúdenta viðurkenningu sem nefnist Val unga fólksins. Nánari upplýsingar um keppnina má finna hér.

Hvernig eru verkefnin metin í keppninni?

Við mat á verkefnum er horft á uppbyggingu og gæði verkefnis, sanngirni og hlutlægni, fróðleik, frumleika og sjálfstæði, miðlun og tengsl Heimsmarkmiðanna. Ítarlegri upplýsingar má finna hér.

Hvað er í verðlaun í árlegu keppninni?

Það er breytilegt eftir ári hverju en sem dæmi um fyrri verðlaun má nefna peninga, rafhlaupahjól og fjölda gjafakorta sem gilda fyrir allskyns skemmtilegum upplifunum. Verkefnastjóri leitar til nemenda um hvað þeir vilja hafa í verðlaun.

Hvað læra nemendur af því að taka þátt?

Nemendur læra um umhverfismál og miðlun efnis. Verkefnið er valdeflandi og ætlað að auka getu nemenda til aðgerða.

Hvers er ætlast til af kennurum í verkefninu?

Kennari kynnir verkefnið og keppnina fyrir nemendum og gefur þeim tíma til þess að vinna sitt verkefni (oft er það hluti af kennslumati áfanga). Kennari fylgist með því að nemendur styðjist við áreiðanlegar heimildir og hvetur nemendur til þess að skila verkefnum sínum í keppnina.
Ef kennari er með einhverjar vangaveltur eða spurningar um verkefnið er honum alltaf velkomið að hafa samband. Nemendur og kennarar í Umhverfisfréttafólki hafa aðgang að sérfræðingum innan Landverndar.
umhverfisfrettafolk@landvernd.is

Er hægt að sinna Umhverfisfréttafólki í fjarkennslu?

Já, það er sannarlega hægt og lítið mál! Hér má finna helstu ráð okkar fyrir verkefnið í fjarkennslu.

Hvað gerist ef ég sigra keppnina?

Ef þú sigrar keppnina innanlands þá færðu verðlaun og gefst tækifæri til þess að taka þátt í alþjóðlegu keppninni.

Auk þess mun verkefnastjóri Landverndar aðstoða þig við að koma sigurverkefninu á framfæri.

Sigur í keppninni getur verið stökkpallur í fleiri spennandi verkefni á sviði umhverfismiðlunar. Fyrri sigurvegarar hafa t.d. hlotið tilnefningu til fjölmiðlaverðlauna,  farið í fréttaviðtölverið til sýnis á loftslagsráðstefnusigrað alþjóðlega umhverfiskeppni og fengið tækifæri til þess að skapa meira efni.

Ertu með spurningu sem ekki er svar við hér?

Sendu okkur línu sigurlaug (hjá) landvernd.is og við höfum samband.