Árleg keppni
Nemendur í verkefninu Umhverfisfréttafólk hjá Landvernd gefst tækifæri til þess að taka þátt í árlegri keppni Umhvefisfréttafólks! Það er sannarlega til mikils að vinna.
Hvernig tek ég þátt?
Landvernd hefur umsjón með verkefninu en það er rekið í samstarfi við skóla í landinu. Þinn skóli þarf að vera skráður í verkefnið. Þegar nemandi er búinn að vinna sitt verkefni er því skilað í keppnina. Sérfræðingar innan Landverndar fara yfir öll verkefni sem berast og fara 10 – 15 stigahæstu verkefnin í undanúrslit. Dómnefnd skipuð reyndu fjölmiðlafólki velur síðan fyrsta, annað og þriðja sæti.
Sigurvegarar eiga kost á því að taka þátt í alþjóðlegri samkeppni Ungs umhverfisfréttafólks.
Auk þess veita Ungir umhverfissinnar, Samband íslenskra framhaldsskólanema og Landssamtök íslenskra stúdenta sérstaka viðurkenningu sem nefnist Val unga fólksins.
Hvernig verkefnum má skila í keppnina?
Tekið er við öllum miðlunarafurðum í keppnina og eru engar kröfur gerðar um lengd, stærð eða gerð verkefnisins.
Skila má fjölbreyttum verkefnum í keppnina!
Hvert og eitt verkefni er yfirfarið með fimm matsviðmið í huga:
- Uppbygging og gæði
- Sanngirni og hlutlægni
- Fróðleikur
- Frumleiki og sjálfstæði
- Miðlun
Auk matsviðmiðanna þurfa nemendur að tengja verkefni sín við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.