Skip to main content

Plast er sniðugt efni. Það er vatnshelt, endingargott og ódýrt. Plast getur verið örþunnt og mjúkt eins og plastpoki eða grjóthart og eldþolið eins og legókubbar. Þegar við flokkum plast þá er stundum hægt að endurvinna það og búa til nýja hluti úr plastinu.

Góð uppfinning

Plast var fundið upp fyrir meira en 100 árum. Fyrr á öldum notaði fólk önnur efni til að búa til nytsamlega hluti. Það notaði tré, gler, leir, málm, bein, skinn og jafnvel vambir!

Í dag er plast notað í hjálplega hluti líkt og reiðhjólahjálma og björgunarvesti.

Plast hefur hjálpað til við að létta farartæki líkt og bíla og flugvélar og svo er plast notað utan um mat svo að hann skemmist síður.

Vandamálið er hvernig við notum það

Vandamálið við plast er ekki endilega plastið sjálft heldur hvernig við notum það og hversu mikið við notum.

Plast er allt of sniðugt og gott efni til að nota bara einu sinni og henda.
Á hverju ári eru framleidd þrjúhundruð og fimmtíu milljón tonn af plasti – það jafgildir þyngd allra jarðarbúa!

Helmingurinn af þessu plasti er bara notaður einu sinni!

Komum í veg fyrir plastmengun í náttúrunni

Mikið af því plasti sem notað er í heiminum lendir úti í náttúrunni. Stundum er því bara hent beint á götuna, stundum fýkur úr opinni ruslafötu og stundum kemur það frá skipum eða fyrirtækjum.
Á hverju ári fara átta milljón tonn af plasti í sjóinn. Það er ansi mikið! Einn stór fíll er eitt tonn. Það væri eins og að henda átta milljón fílum í sjóinn á hverju ári!

Plast getur verið hættulegt dýrum eins og fuglum, fiskum og öðrum sjávardýrum. Dýrin geta flækst í plastinu og halda jafnvel að það sé matur. Þegar dýrin hafa borðað mikið af plasti halda þau að þau séu södd og fá ekki næga næringu.

En hvað getum við gert?

Við höfum vald til að breyta okkur sjálfum og hafa áhrif á aðra. Við höfum getu til aðgerða og getum fundið lausnir og breytt heiminum.

Við ættum að spyrja okkur sjálf hvað við þurfum í raun og veru og sleppt því svo sem er óþarfi. Kaupum ekki hluti sem rata í ruslið eftir nokkurra mínútna notkun. Spörum umhverfinu og náttúrunni það.

Einstaklingar – stjórnvöld og fyrirtæki þurfa að taka höndum saman  

Þó að við getum gert margt sjálf til að draga úr plastmengun þá verður plastvandinn seint leystur af einstaklingum einum saman. Stjórnvöld og fyrirtæki bera mikla ábyrgð og þau þurfa að hjálpa til.

Ein góð leið til að hafa áhrif er að þrýsta á þau sem ráða og fræða annað fólk í kringum okkur um stöðuna. Við getum sent góðar hugmyndir og tillögur til stjórnvalda og fyrirtækja og vakið athygli á þessu máli.

Við getum öll haft áhrif