Eftir að skóli sendir inn umsókn um grænfána fer starfsmaður menntateymis Landverndar yfir umsóknina og finnur tíma fyrir úttekt í kjölfarið.
Í úttektinni gefst skólanum tækifæri til þess að segja frá og sýna það sem unnið var með á liðnu tímabili. Í úttekt gefst einnig gott tækifæri til að ræða um tækifæri og hindranir verkefnisins í skólanum og geta starfsmenn menntateymisins aðstoðað, frætt og komið með hugmyndir að lausnum.