Skip to main content

Í leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ hafa nemendur endurnýtt leirtau og búið til  skemmtileg listaverk. Sjá ljósmynd.

Í Krakkaborg í Flóahreppi er leirtau og flísar nýttar til jólagjafagerðar.

Þetta er upplagt því oft safnast upp leirtau sem ekki er notað lengur bæði í skólum og á heimilum.

Efni og áhöld: Leirtau,flísar málning, hamar.

Aldur: 2-8 ára

Með hringrásarhagkerfið í huga viljum við nýta það sem til er og gefa hlutum framhaldslíf. Í leikskólunum Tjarnarseli og Krakkaborg vinna nemendur með leirtau og flísar sem hætt er að nota. Börnin skreyta og gera listaverk og jólagjafir.

Sniðugt getur verið að óska eftir slíku frá foreldrum eða jafnvel fyrirtækjum í nærumhverfinu. Nemendur geta málað á leirtauið og flísarnar. Önnur hugmynd er að brjóta það niður og búa til mósaíkverk.