
Til hamingju með daginn… kæru Grænfánaskólar! Í dag fögnum við sérstaklega enda ekki einungis Dagur umhverfisins heldur líka 23 ára afmæli Grænfánans á Íslandi. Af því...
Landvernd eru náttúruverndarsamtök og menntateymið rekur verkefnin Grænfánann, Umhverfisfréttafólk auk þess að stuðla að menntun til sjálfbærni með útgáfu námsefnis.
Til hamingju með daginn… kæru Grænfánaskólar! Í dag fögnum við sérstaklega enda ekki einungis Dagur umhverfisins heldur líka 23 ára afmæli Grænfánans á Íslandi. Af því...
Uppskeruhátíð í verkefninu Umhverfisfréttafólk fór fram fimmtudaginn 10.apríl. Á hverju ári berast fjölmörg vönduð og fjölbreytt verkefni í keppnina frá skólum víðsvegar á landinu. Í ár...
Vorið nálgast og Alviðra opnar faðm sinn fyrir nemendur og kennara frá 19. maí til 6. júní, og svo aftur síðsumars frá 25. ágúst til 30....
Á heimasíðu Grænfánans má finna heljarinnar safn af verkefnum sem teymi Grænfánans og Grænfánaskólar hafa útbúið fyrir mismunandi skólastig undanfarin ár. Þau eru opin almenningi og við hvetjum ykkur öll til að nýta þau í leik og starfi.
Verkefnunum er ætlað að vekja umhugsun, veita fræðslu, valdefla og efla gagnrýna hugsun hjá börnum og ungmennum í tengslum við umhverfismál af ýmsum toga. Okkur langar að dreifa gleðinni, vekja athygli á þessum góðu verkefnum.
"Þú verndar aðeins það sem þú elskar, þú elskar aðeins það sem þú þekkir, þú þekkir aðeins það sem þér er kennt."
Við vinnum með ýmis hugtök í grænfánavinnunni, sem tengjast loftslagsmálum og náttúruvernd. Hugtök eru útskýrð með stutta svarinu og langa svarinu.